Fotbolti.net
16.06.25 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fer Karólína Lea í stórlið á Ítalíu?

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er líklega á leið frá Bayern München í sumar.

Karólína hefur varið síðustu tveimur tímabilum á láni hjá Bayer Leverkusen og staðið sig vel.
Orri Rafn Sigurðarson, fyrrum fréttamaður Fótbolta.net, hefur sagt frá því á samfélagsmiðlum að það sé áhugi á henni frá Englandi og Spáni.

„West Ham var til dæmis á eftir henni og svo hefur Brighton verið orðað við hana," sagði Orri í hlaðvarpi á Fótbolta.net á dögunum.

Núna segir hann á samfélagsmiðlinum X að Inter hafi skorist í leikinn og valið sé á milli tveggja félaga núna. „Inter er annað þeirra liða samkvæmt mínum heimildum," segir Orri.

Það væri áhugavert ef Karólína fer í Inter þar sem liðsfélagi hennar í landsliðinu, Cecilía Rán Rúnarsdóttir, virðist vera á leiðinni þangað. Cecilía lék á láni með Inter á síðasta tímabili og var besti markvörðurinn á Ítalíu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.