Fotbolti.net
16.06.25 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Patrik myndaður með foreldrunum er hann var leikmaður mánaðarins

Patrik varð Íslandsmeistari með Breiðabliki í fyrra.

Patrik varð Íslandsmeistari með Breiðabliki í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Patrik Johannesen hefur verið að gera stórkostlega hluti í Færeyjum undanfarna mánuði.

Hann sneri aftur til Færeyja í byrjun árs eftir dvöl á Íslandi þar sem hann lék bæði fyrir Keflavík og Breiðablik. Hann var frábær með Keflavík en fann sig ekki alveg eins vel með Breiðabliki eftir að hafa verið keyptur þangað fyrir mikinn pening.
Meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum er hann var hjá Breiðabliki, en hann varð Íslandsmeistari með Kópavogsfélaginu í fyrra.

Hann samdi við KÍ Klaksvík við komuna aftur til Færeyja og þar hefur hann gert 14 mörk í 16 leikjum, og einnig er hann með sex stoðsendingar.

Patrik var nýverið valinn leikmaður mánaðarins í Færeyjum fyrir maímánuð og birti KÍ skemmtilega mynd af honum þar sem hann er með foreldrum sínum og heldur á verðlaunum.

Hér fyrir neðan má sjá myndina en KÍ er yfirburðarlið í Færeyjum og er þar taplaust á toppnum eftir 13 leiki.

Þess má geta að markahæsti leikmaðurinn í færeysku deildinni er Klæmint Olsen, en sá átti erfitt uppdráttar hjá Breiðabliki sumarið 2023.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.