Diljá Ýr Zomers, leikmaður Häcken í Svíþjóð, hefur verið kölluð inn í íslenska landsliðshópinn. Diljá kemur inn fyrir Hlín Eiríksdóttur sem glímir við meiðsli.
Framundan hjá kvennalandsliðinu er heimaleikur gegn Hollandi í undankeppni HM á þriðjudag.
Framundan hjá kvennalandsliðinu er heimaleikur gegn Hollandi í undankeppni HM á þriðjudag.
Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag og var spurður út í stöðuna á landsliðshópnum sem kom saman nýlega.
Hann var sérstaklega spurður út í Hlín sem fór af velli í leik með Piteå á sunnudag.
„Við köllum inn nýjan leikmann fyrir Hlín. Það kom smá bakslag í hennar meiðsli í morgun þannig við köllum inn nýjan leikmann," sagði Þorsteinn. „Við köllum inn Diljá Ýr."
Finnst þér allar í hópnum vera á góðum stað komandi inn í leikinn á þriðjudaginn?
„Já, ég held það. Þetta lítur bara vel út. Ég er ánægður með hvernig mannskapurinn hefur verið og ég er sáttur við standið á hópnum," sagði Þorsteinn.
Athugasemdir