Fotbolti.net
16.10.26 - 20:05
Sóldís Erla

Gylfi Tryggvason: Mikil forréttindi að hafa fengið að þjálfa hana

Auglýsing
Gylfi Tryggvason

Gylfi Tryggvason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Grindavík/Njarðvík tóku á móti ÍBV í Keflavík kl 17:00 í dag. Heimakonur sóttu sér þrjú stig og eru komnar í 4.sæti Bestu deildarinnar. Gylfi Tryggvason þjálfari liðsins var ánægður með liðið sitt eftir leikinn í dag.
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 2 - 1 ÍBV
Grindavík/Njarðvík sóttu þrjú stig í leik á móti ÍBV í bestu deild kvenna í dag. Leikurinn fór fremur hægt af stað en að lokum voru það heimakonur sem höfðu betur.

„Ég er mjög ánægður með margt sem við gerðum í dag á háu leveli annað á ekki eins háu leveli, heilt yfir er ég mjög ánægður með frammistöðuna."

Grindavík/Njarðvík eru í deildinni sem nýliðar en hafa komið verulega á óvart þar sem þær enduðu í efri hluta deildarinnar ásamt því að hafa náð frábærum árangri í Mjólkurbikarnum.

„Mér finnst tímabilið búið að ganga frábærlega, draumatímabil í ár. Þetta hefur verið ógeðslega erfitt og mikið af hindrunum sem hafa staðið í veginum. Leikmenn hafa höndlað allt sem hefur komið í fangið á okkur."

Natasha hefur lagt skóna á hilluna eftir frábæran feril. Hún hefur verið mjög mikilvægur hlekkur í liði Grindavíkur/Njarðvíkur og þetta er eflaust stórt skarð sem hún skilur eftir sig.

„Ég held ég komi því ekki í orð hversu mikil forréttindi mér finnst ég hafa upplifað við að fá að þjálfa hana. Ég er ekki hrifinn af því að taka leikmenn út fyrir sviga og vera að tala um einstaklinga í svona viðtölum en mér finnst hún eiga það skilið. Þvílíka goðsögnin í íslenskri knattspyrnu."

Restina af viðtalinu má sjá í spilaranum hér að ofan.
Natasha heiðruð fyrir leikinn í dag.

Natasha heiðruð fyrir leikinn í dag.

Canon

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.