15.10.26 - 20:25
Elvar Geir Magnússon
„Þakklátur fyrir að þetta uppgötvaðist ekki fyrr“

Guðmundur Kristjánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll Sigmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Kristjánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Kristjánsson, leikmaður Stjörnunnar, greindi frá því í vikunni hver væri ástæðan fyrir því að hann hefur lagt skóna á hilluna.
„Ég greindist með hjartasjúkdóm í sumar, þykknun á hjartavöðva. Læknirinn sagði mér að þetta væri algengasta orsökin fyrir því þegar íþróttafólk hnígur niður á leikvelli," sagði Guðmundur við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV.

TENGT EFNI
Hjartasjúkdómur ástæðan fyrir því að Gummi Kristjáns lagði skóna á hilluna
Guðmundur fór svo í viðtal við Valtý Björn Valtýsson í útvarpsþættinum Mín skoðun og sagði frá því hvernig þetta vandamál greindist.
„Ég hef í gegnum tíðina farið í svona hjartalínurit í tengslum við Evrópukeppni. Þá hefur greinst etthvað óreglulegt, eitthvað eins og það á ekki að vera. Það var upphaflega haldið að þetta væri eitthvað annað. Blessunarlega eiginlega var þetta ekki uppgötvað alveg strax, þá hefði ég ekki fengið að klára minn feril. Ef þetta hefði uppgötvast fyrr þá hefði ég sennilega þurft að hætta í fótbolta mjög ungur," segir Guðmundur.
„Svo fór ég í nánari skoðanir núna og þá kom þetta í ljós. Eftirá að hyggja er ég þakklátur að það hafi ekki gerst fyrr, þannig að ég gat spilað fótbolta."
Lyftistöng sem við þurfum
Guðmundur hefur sagt að hugur sinn leiti meðal annars í að fara út í fótboltaþjálfun. Sögusagnir hafa verið um að hann gæti farið inn í teymið hjá Rúnari Páli Sigmundssyni sem tekur við eftir tímabilið.
Hann gaf ekkert upp í viðtalinu við Valtý en sagðist mjög ánægður með ráðninguna á Rúnari.
„Ég þekki hann af einungis góðu, toppmaður og er náttúrulega Garðbæingar svo allir þekkja hann mjög vel. Ég held að hann sé mjög flottur til að koma inn í þetta, bara ótrúlega öflugur og góður þjálfari þannig að ég held að hann gæti alveg verið sú lyftistöng sem við kannski þurfum á þessum tímapunkti," segir Guðmundur.

Heimild: Mín skoðun

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll Sigmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð