Fotbolti.net
15.10.26 - 20:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski boltinn

Yngsti Ítalinn til að skora þrennu

Yngsti Ítalinn til að skora þrennu
Canon

Mynd: EPA

Alphadjo Cisse, leikmaður AC Milan, varð yngsti ítalinn til að skora þrennu í Evrópukeppni í kvöld en hann skoraði þrennuna í 4-0 sigri á RB Salzburg í Evrópudeildinni.
Hann er 19 ára og 358 daga gamall en hann bætti met Giancarlo Danova sem var tæplega 21 árs þegar hann skoraði þrennu gegn Olympiakos í Evrópubikarnum árið 1959.

Cisse hefur komið við sögu í 5 leikjum í ítölsku deildinni á tímabilinu og skorað tvö mörk.

„Ég er mjög ánægður með þrennuna og sigurinn. Ég er mjög ánægður og mun klárlega taka þetta með mér inn í næsta leik," sagði Cisse eftir leikinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.