Manchester City 4 - 1 West Ham
0-1 Mark Noble ('26, víti)
1-1 David Silva ('33)
2-1 Lukas Nmecha ('36)
3-1 Raheem Sterling ('59)
4-1 Raheem Sterling ('79)
0-1 Mark Noble ('26, víti)
1-1 David Silva ('33)
2-1 Lukas Nmecha ('36)
3-1 Raheem Sterling ('59)
4-1 Raheem Sterling ('79)
Manchester City sigraði West Ham 4-1 í undanúrslitum á æfingamóti í Kína í dag.
West Ham komst yfir um miðbik fyrri hálfleiks en City sneri taflinu sér í hag fyrir hlé með mörkum frá David Silva og hinum tvítuga Lukas Nmecha.
Raheem Sterling bætti síðan tveimur mörkum við fyrir ensku meistarana í síðari hálfleik.
Manchester City mætir Wolves í úrslitaleik mótsins á laugardaginn en þá mætir West Ham liði Newcastle í leik um 3. sætið. Síminn Sport sýnir báða leikina.
Athugasemdir