mið 17. ágúst 2022 21:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Haaland mun skora meira á útivelli
Mynd: EPA

Erling Haaland byrjar ferilinn vel með Manchester City en hann er með tvö mörk og eina stoðsendingu í fyrstu tveimur leikjunum í deildinni.


Hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri á West Ham á útivelli í fyrstu umferð og lagði upp á Kevin De Bruyne í 4-0 sigri á Etihad vellinum gegn Bournemouth.

Shaun Wright-Phillips fyrrum leikmaður City telur að Haaland muni skora fleiri mörk á útivelli fyrir liðið.

„Hann er að læra að spila öðruvísi fótbolta en hann er vanur. Hann verður að vera þolinmóður og bíða eftir rétta möguleikanum. Ég held að hann sé líklegri til að skora fleiri mörk á útivelli þar sem lið spila öðruvísi þegar þau koma á Etihad," sagði Wright-Phillips.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner