Christian Pulisic virtist mjög pirraður er hann fór af velli í 2-0 tapi Bandaríkjanna gegn Kanada í Þjóðadeild CONCACAF, þjóða í Norður- og Mið-Ameríku, og karabíska hafinu.
Pulisic fór pirraður af velli eftir um klukkutíma og virtist hann fella tár er hann settist niður í varamannaskýlið.
Eftir leikinn útskýrði Gregg Berhalter, þjálfari Bandaríkjanna, skiptinguna með því að segja að Pulisic hefði verið með flensueinkenni.
Squawka fjallar um málið og í grein þeirra segir að á endursýningum hafi sést þegar Pulisic hafi sagt þjálfaranum að það „væri allt í fínu lagi" og var hann ósáttur við skiptinguna.
Pulisic er leikmaður Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, hann var keyptur þangað frá Dortmund fyrir þetta tímabil fyrir 58 milljónir punda. Hann hefur ekki verið í stóru hlutverki í upphafi tímabilsins og viðurkennir að það sé pirrandi
Hér að neðan má sjá myndband af því þegar Pulisic fór af velli.
Christian Pulisic frustrated after coming off against Canada.pic.twitter.com/ulHoYe4tl3
— USMNT Only (@usmntonly) October 16, 2019
Athugasemdir