Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 17. október 2021 10:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Elías heldur Lössl áfram á bekknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Rafn Ólafsson heldur goðsögninni hjá Midtjylland Jonas Lössl áfram á bekknum. Midtjylland mætir Nordsjalland á útivelli núna kl 11.

Elías er áfram í byrjunarliðinu hjá Midtjylland en hann hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðuna sína hjá félaginu.

Hann hefur leikið fimm leiki í deildinni og haldið hreinu í þeim öllum. Þá var hann í rammanum er liðið mætti Braga frá Portúgal í Evrópudeildinni.

Liðið tapaði 3-1 en hann gerði sér lítið fyrir og varði vítaspyrnu í stöðunni 1-0 fyrir Midtjylland.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner