Fotbolti.net
12.09.26 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gaui Lýðs spáir í 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Guðjón Pétur Lýðsson.

Guðjón Pétur Lýðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spámaður
Fjórða umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst núna klukkan 14:00 en það er sannkallaður stórleikur á morgun þegar Manchester félögin eigast við.

Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka, spáir í leikina að þessu sinni. Lærisveinar Gauja fóru með sigur af hólmi í 2. deild karla á dögunum.
Aston Villa 2 - 1 Nottingham Forest (14:00 í dag)
Þetta er solid sigur fyrir Aston Villa. McGinn með tvennu og Emery heldur áfram að gera frábæra hluti með Aston Villa liðið.

Bournemouth 2 - 2 Brentford (14:00 í dag)
Moneyball liðin sættast á gott jafntefli.

Chelsea 4 - 0 Hull (14:00 í dag)
Chelsea nær að brjóta þetta feykiöfluga Hull lið sem hefur byrjað þetta mót af miklum krafti. Ég þekki skringilega marga Hullara og má með að nefna að eigandi KÁ, Friðleifur, er einn af þeim veiku. Ég sendi honum og hans fjölskyldu einnig baráttukveðjur í dag á móti Reyni Sandgerði.

Crystal Palace 0 - 2 Ipswich (14:00 í dag)
Hef alltaf verið veikur fyrir Ipswich Town síðan Maxim Tsigalko raðaði inn mörkum fyrir mig í Championship Manager fornum daga.

Liverpool 2 - 2 Fulham (14:00 í dag)
Poolararnir voru öflugir í vikunni á móti Atletico Madrid en ég spá því að þeir komist aftur í sitt fyrrum form í deildinni og gera jafntefli við strákana frá London. Kerkez og Frimpong skora báðir sjálfsmark enda geta þeir ekkert.

Tottenham 1 - 2 Everton (16:30 í dag)
Nýi skólinn á móti gamla. Ég hef trú á að Tottenhan menn séu ekki alveg búnir að setja saman liðið sitt en verða virkilega öflugir þegar það fer að líða á. Moyes mætir með 4-4 f****** 2 og vinnur.

Sunderland 0 - 1 Arsenal (19:00 í kvöld)
Líklega eru þetta tvö leiðinlegustu lið deildarinnar en Sunderland er auðvitað alger viðbjóður og munu tapa gegn liði Arsenal sem svæfir liðin og drepur allt sem er fallegt inná fótboltavelli. Elska auðvitað nokkra í þessu Arsenal liði og Ödegaard er nýi Özil en það vantar fleiri skemmtikrafta í þetta lið. Þeir eru massífir til baka og það skilar sér í þremur punktum eins og fyrri daginn.

Coventry 1 - 3 Brighton (13:00 á morgun)
Besta Moneyball verkefnið klikkar ekki og það kemur núr maður fram á sjónarsviðið sem enginn þekkir og skorar þrjú. Frank Lampard skiptir einhverjum úr þessu Coventry liði inn á sem skorar sárabótarmark á 93. mínútu.

Man Utd 3 - 1 Man City (15:30 á morgun)
Hentar United vel að sækja hratt á City liðið og Rashford ræðst á bakvið línuna og skorar tvö. Bruno skorar eitt og Rayan Cherki galdrar eitt upp á eigin spýtur.

Leeds 0 - 4 Newcastle (19:00 á mánudag)
Ég er að vera bullandi meðvirkur hér gagnvart mínum mönnum. Erum gott skyndisóknalið en vantar verulega upp á gæðin til að geta stjórnað leikjum. Grunar að Leedsararnir verði fullákafir að sækja gegn okkur og fái það verulega í bakið

Fyrri spámenn:
Stefan Ljubicic (6 réttir)
Dom Ankers (5 réttir)
Gunni Birgis (5 réttir)
John McGinn.

John McGinn.

Canon

Mynd: EPA

Rashford ræðst á bakvið línuna.

Rashford ræðst á bakvið línuna.

Canon

Mynd: EPA

Guðjón Pétur spáir því að Newcastle vinni þægilegan sigur.

Guðjón Pétur spáir því að Newcastle vinni þægilegan sigur.

Canon

Mynd: EPA

Martin Ödegaard hefur farið vel af stað á tímabilinu.

Martin Ödegaard hefur farið vel af stað á tímabilinu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.