Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 18. janúar 2020 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
France Football: Arsenal fær Kurzawa næsta sumar
France Football segir Kurzawa skrifa undir fimm ára samning við Arsenal, út tímabilið 2024-25.
France Football segir Kurzawa skrifa undir fimm ára samning við Arsenal, út tímabilið 2024-25.
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur áhuga á franska bakverðinum Layvin Kurzawa sem rennur út á samningi hjá Paris Saint-Germain næsta sumar.

Arsenal vill helst fá Kurzawa til sín strax í janúar en France Football greinir frá því að verðmiði PSG sé of hár að mati stjórnarmanna Lundúnafélagsins.

Arsenal er í vandræðum með vinstri bakvarðarstöðuna þar sem Sead Kolasinac og Kieran Tierney hafa verið að glíma við meiðsli.

Kurzawa er 27 ára gamall og á tólf A-landsleiki að baki fyrir Frakkland. Hann hefur spilað yfir 100 leiki á fjóru og hálfu ári hjá PSG og hefur komið við sögu í 11 deildarleikjum af 20 hingað til á tímabilinu.

Arsenal er óvænt um miðja úrvalsdeild, með 28 stig eftir 22 umferðir, sex stigum frá Evrópusæti.
Athugasemdir
banner
banner