Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 13:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Landsliðshópurinn - Fyrirliðinn snýr aftur ásamt Gylfa en enginn Albert
Landsliðsfyrirliðinn er orðinn klár.
Landsliðsfyrirliðinn er orðinn klár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristall í fyrsta sinn í landsliðinu í alþjóðlegum glugga.
Kristall í fyrsta sinn í landsliðinu í alþjóðlegum glugga.
Mynd: Brann
Gylfi er markahæsti leikmaður landsliðsins.
Gylfi er markahæsti leikmaður landsliðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlalandsliðsins, hefur valið 23 manna hóp fyrir vináttuleikina gegn Kanada (17:00 28. mars) og Haítí (16:30 31. mars). Báðir leikir fara fram á Canda BMO Field leikvanginum í Ontario, Kanada.

Kanada og Haítí eru að undirbúa sig fyrir HM í sumar, Kanada heldur mótið ásamt Bandaríkjunum og Mexíkó. Kanada er í 29. sæti heimslistans, Haítí er í 83. sæti og Ísland situr í 74. sæti listans.

Arnar gerir nokkrar breytingar á hópnum sem valinn var fyrir leikina gegn Aserbaísjan og Úkraínu í nóvember. Andri Lucas Guðjohnsen er meiddur og verður ekki meira með á þessu tímabili. Daníel Tristan Guðjohnsen og Gísli Gottskálk Þórðarson eru ekki í hópnum og gætu verið í U21 hópnum sem tilkynntur verður seinna í dag. Bjarki Steinn Bjarkason glímir við meiðsli og þeir Albert Guðmundsson og Jóhann Berg Guðmundsson eru ekki valdir.

Inn í hópinn kemur landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson og þeir Dagur Dan Þórhallsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Kristall Máni Ingason og Arnór Sigurðsson. Þetta er í fyrsta sinn sem Arnar velur Gylfa í alþjóðlegum landsleikjaglugga og í fyrsta sinn sem Kristall, sem lék frábærlega með SönderjyskE fyrir áramót, er í valinn í landsliðið í alþjóðlegum glugga. Kristall hefur glímt við meiðsli hjá Brann en er væntanlega orðinn klár.

Hópurinn
Markverðir
Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylldand - 13 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 20 leikir
Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 3 leikir

Útileikmenn
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 27 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor - 13 leikir, 1 mark
Daníel Leó Grétarsson - SönderjyskE - 29 leikir
Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 51 leikur, 2 mörk
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos F.C. - 65 leikir, 4 mörk
Aron Einar Gunnarsson - Al Gharafa-SC - 107 leikir, 5 mörk
Dagur Dan Þórhallsson - CF Montréal - 7 leikir
Guðlaugur Victor Pálsson - AC Horsens - 56 leikir, 5 mörk
Ísak Bergmann Jóhannesson - 1. FC Köln - 41 leikur, 6 mörk
Gylfi Þór Sigurðursson - Víkingur R. - 84 leikir, 27 mörk
Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 34 leikir, 1 mark
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa S.K. - 10 leikir
Kristall Máni Ingason - SK Brann - 6 leikir
Jón Dagur Þorsteinsson - SK Brann - 52 leikir, 6 mörk
Mikael Neville Anderson - Djurgardens IF - 37 leikir, 2 mörk
Arnór Sigurðsson - Malmö FF - 34 leikir, 2 mörk
Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 7 leikir, 1 mark
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 16 leikir, 7 mörk
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 28 leikir, 3 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 9 leikir, 2 mörk
Athugasemdir
banner
banner