Sex breytingar
Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið 20 manna hóp sem mætir Eistlandi og Frakklandi í undankeppni EM 2027.
Ísland mætir Eistlandi á Þróttarvelli fimmtudaginn 26. mars kl. 16:00 og Frakklandi á Abbé-Deschamps í Auxerre mánudaginn 30. mars kl. 17:00 að íslenskum tíma.
Ísland er í fjórða sæti riðilsins með átta stig eftir fimm leik. Frakkland er í efsta sæti með 10 stig eftir fjóra leiki og Eistland í því neðsta með tvö stig eftir fimm leiki.
Sex leikmenn koma inn í hópinn og tveir þeirra voru með A-landsliðinu í nóvember. Það eru þeir Gísli Gottskálk Þórðarson og Daníel Tristan Guðjohnsen. Daníel hefur ekki spilað með U21 til þessa. Sömu sögu er að segja af Viktori Bjarka Daðasyni (2008) og Tómas Johannessen (2007) sem koma inn í hópinn eftir að hafa verið með U19. Júlíus Mar Júlíusson snýr aftur í hópinn og Hlynur Þórhallsson (2005) hjá Þrótti gæti spilað sinn fyrsta leik í íslensku landsliðstreyjunni.
Hlynur Freyr Karlsson, Eggert Aron Guðmundsson, Hinrik Harðarson, Guðmundur Baldvin Nökkvason, Ásgeir Helgi Orrason og Benoný Breki Andrésson voru með síðast en verða ekki með í komandi leikjum.

Hópurinn
Markverðir
Lúkas Blöndal-Petersson - TSG 1899 Hoffenheim
Halldórs Snær Georgsson - KR
Útileikmenn
Logi Hrafn Róbertsson - IFK Värnamo
Júlíus Mar Júlíusson - Kristiansund BK
Jóhannes Kristinn Bjarnason - Víkingur R.
Hlynur Þórhallsson - Þróttur R.
Baldur Kári Helgason - FH
Nóel Atli Arnórsson - AaB
Daníel Freyr Kristjánsson - FC Fredericia
Haukur Andri Haraldsson - ÍA
Tómas Orri Róbertsson - FH
Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan
Kjartan Már Kjartansson - Aberdeen
Helgi Fróði Ingason - Helmond Sport
Róbert Frosti Þorkelsson - GAIS
Ágúst Orri Þorsteinsson - Breiðablik
Tómas Johannessen - AZ Alkmaar
Hilmir Rafn Mikaelsson - Viking FK
Viktor Bjarki Daðason - FCK
Daníel Tristan Guðjohnsen - Malmö FF
Þrír leikmenn koma saman með liðinu hér heima fyrir leikinn gegn Eistlandi og æfa með liðinu. Þeir eru:
Arnar Daði Jóhannesson - Afturelding
Davíð Helgi Aronsson - Keflavík
Amin Cosic - KR
Athugasemdir