Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. júní 2019 14:22
Elvar Geir Magnússon
De Ligt nýtur sín í sólinni í Flórída
De Ligt er í sumarfríi.
De Ligt er í sumarfríi.
Mynd: Twitter
Matthijs de Ligt, einn eftirsóttasti fótboltamaður heims, fær engan frið frá ljósmyndurum um þessar mundir.

Þessi 19 ára varnarmaður Ajax mun líklega ganga í raðir Paris Saint-Germain eða Barcelona í sumar en Manchester United hefur einnig mikinn áhuga á honum. Þá hafa Bayern München og Juventus verið nefnd.

De Ligt átti magnað tímabil með Ajax en hann var fyrirliði liðsins þegar það tryggði sér hollenska meistaratitilinn og komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar.

Sú staðreynd að Manchester United er ekki í Meistaradeildinni vinnur gegn möguleikum Rauðu djöflanna.

De Ligt er nú staddur í sumarfríi með kærustunni sinni í Flórída í Bandaríkjunum þar sem þau njóta góða veðursins. De Ligt hefur meðal annars verið að lesa ævisögu Memphis Depay í sólinni.

PSG er talið líklegast til að fá De Ligt en félagið er tilbúið að greiða honum ofurlaun. Þá sást kærasta hans, AnneKee Molenaar, nýlega í höfuðborg ástarinnar þar sem hún var að skoða íbúðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner