Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. júní 2021 07:30
Victor Pálsson
Ferdinand: Memphis skrifaði undir of ungur
Mynd: Getty Images
Memphis Depay gæti hafa samið við Manchester United of ungur að sögn Rio Ferdinand, fyrrum leikmanns liðsins.

Memphis Depay gæti hafa samið við Manchester United of ungur að sögn Rio Ferdinand, fyrrum leikmanns liðsins.

Memphis er á leið til spænska stórliðsins Barcelona en hann hefur staðið sig afar vel með Lyon í Frakklandi.

Memphis spilar nú með hollenska landsliðinu á EM og skoraði í 2-0 sigri á Austurríki í gær.

Hann spilaði með Man Utd frá 2015 til 2017 en stóðst alls ekki væntingar er Louis van Gaal var við stjórnvölin.

„Ég held að það tengist nokkrum hlutum. Tímasetningunni, þroska og hann gæti hafa farið þangað of ungur," sagði Ferdinand.

„Svo tengist það þjálfun, réttri þjálfum á þessum tíma."
Athugasemdir
banner
banner