04.10.26 - 18:46
Ívan Guðjón Baldursson
Kom inn af bekknum og innsiglaði sigurinn

Mynd: AD Merida

Mynd: AD Merida
Sigurður Bjartur Hallsson byrjaði á bekknum en kom inn og innsiglaði sigur Mérida í þriðju efstu deild spænska boltans.
Mérida vann 2-0 gegn Cacereno og er með 6 stig eftir 6 umferðir. Liðið spilaði vel í dag gegn sterkum andstæðingum sem eiga 11 stig eftir tapið.
Sigurður Bjartur skoraði 4 mörk í 17 deildarleikjum á síðustu leiktíð og er þetta hans fyrsta mark eftir fimm deildarleiki á nýju tímabili.
Fyrr í dag lék Davíð Snær Jóhannsson allan leikinn í dýrmætum sigri Bryne sem var að vinna þriðja leikinn í röð.
Bryne leikur í næstefstu deild í Noregi og er í harðri baráttu um umspilssæti fyrir sæti í efstu deild á næstu leiktíð. Davíð Snær og félagar eiga 38 stig eftir 24 umferðir. Þeir sitja í umspilssæti þegar aðeins sex umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Gunnar Orri Olsen var að lokum í byrjunarliði FCK sem tapaði æfingaleik gegn þýska félaginu Hamburger SV.
Merida 2 - 0 Cacereno
1-0 Lacine Kone ('47)
2-0 Sigurður Bjartur Hallsson ('77)
Bryne 1 - 0 Lyn
HSV 2 - 0 FCK