Fotbolti.net
18.06.25 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Everton að stela starfsmanni frá Man Utd

Nick Cox.

Nick Cox.

Canon

Mynd: Man Utd

Everton er að ráða Nick Cox í stórt starf á bak við tjöldin hjá félaginu. Hann kemur frá Manchester United.

Cox mun fá starfstitilinn 'technical director' hjá Everton og verður þar með yfir fótboltadeildinni hjá Everton.
Cox hefur verið í níu ár hjá Manchester United, en var áður hjá Sheffield United og Everton.

Hann byrjaði sem þjálfari í akademíu Man Utd árið 2016 en hefur frá árinu 2020 verið yfir akademíu félagsins.

Cox hefur hafnað áhugaverðum störfum á meðan hann hefur verið hjá Man Utd en ætlar að stökkva á þetta tækifæri hjá Everton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.