18.09.26 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Alonso: Myndi kalla þetta uppfærslu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Xabi Alonso hefur farið þokkalega vel af stað við stjórnvölinn hjá Chelsea, en hann er þriðji þjálfari félagsins á einu ári eftir að Enzo Maresca og Liam Rosenior voru reknir á síðustu leiktíð.

TENGT EFNI
Boehly búinn að selja og kveður Chelsea (Staðfest)
Chelsea endaði í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á miklu vonbrigðatímabili og var það í þriðja sinn á fjórum árum sem liðinu mistókst að komast í Evrópukeppni.
Alonso var spurður hvort Chelsea hafi þurft á endurræsingu að halda þegar hann var ráðinn inn í sumar.
„Þetta var ekki endurræsing, ég myndi frekar kalla þetta uppfærslu. Að taka öðruvísi ákvarðanir og aðra stefnu. Í mínum huga er liðið það mikilvægasta, liðsheildin. Það skiptir máli á hvaða stigi leikmenn eru á ferlinum og hvernig menn við viljum hafa í hópnum. Við þurftum að taka mikilvægar ákvarðanir varðandi hverjum við vildum halda innan félagsins og hverjum ekki og varðandi hvaða stöður við gátum bætt," sagði Alonso.
„Þetta voru mikilvægu hlutirnir fyrir mér þegar ég tók við starfinu. Við samþykktum ákveðna stefnu og síðan þá hefur þetta snúist um að taka ákvarðanir. Við erum búnir að taka einhverjar ákvarðanir og aðrar verða teknar í framtíðinni. Við erum sannfærðir um að við séum að fara í rétta átt.
„Núna snýst þetta ekki lengur um að bæta hópinn, heldur um að vera samkeppnishæfir og finna leiðir til að bæta einstaklingana og liðsheildina. Við erum á tímabili mikilla breytinga og þurfum að leggja mikla vinnu á okkur til að aðlagast."
Chelsea hefur unnið fjóra leiki af sex í öllum keppnum undir stjórn Alonso og kom eina tapið gegn Englandsmeisturum Arsenal. Liðið er að keppa í Lundúnaslag við Brentford þessa stundina í ensku úrvalsdeildinni, en fyrir upphafsflautið var Chelsea með sjö stig úr fjórum leikjum.
„Við erum í ákveðnu ferli sem við vitum ekki hvað mun taka langan tíma. Ég er mjög einbeittur að þeim áskorunum sem eru framundan fyrir leikmannahópinn."

Elsta byrjunarlið Chelsea í meira en þrjú ár

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 4 | +7 | 12 |
| 2 | Man City | 4 | +6 | 12 |
| 3 | Leeds | 4 | +4 | 8 |
| 4 | Hull City | 4 | +3 | 8 |
| 5 | Brighton | 4 | +8 | 7 |
| 6 | Chelsea | 4 | +1 | 7 |
| 7 | Brentford | 4 | +3 | 6 |
| 8 | Liverpool | 4 | +2 | 6 |
| 9 | Everton | 4 | +2 | 6 |
| 10 | Ipswich Town | 4 | -3 | 6 |
| 11 | Nott. Forest | 4 | 0 | 5 |
| 12 | Newcastle | 4 | -1 | 5 |
| 13 | Man Utd | 4 | 0 | 4 |
| 14 | Sunderland | 4 | -2 | 4 |
| 15 | Bournemouth | 4 | -1 | 3 |
| 16 | Crystal Palace | 4 | -5 | 3 |
| 17 | Tottenham | 4 | -5 | 2 |
| 18 | Fulham | 4 | -3 | 1 |
| 19 | Aston Villa | 4 | -6 | 1 |
| 20 | Coventry | 4 | -10 | 0 |