Fotbolti.net
18.09.26 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Liverpool með ákveðið forskot - „Þekki þá út og inn“

Andoni Iraola, stjóri Liverpool.

Andoni Iraola, stjóri Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola fer á sunnudaginn með Liverpool í heimsókn til Bournemouth þar sem hann mætir sínum gömlu lærisveinum.

Bournemouth vann Real Sociedad í Evrópudeildinni í gær og Liverpool fær því fleiri daga til undirbúnings.
England um helgina - Síðasta umferðin fyrir þriggja vikna landsleikjahlé
TENGT EFNI

England um helgina - Síðasta umferðin fyrir þriggja vikna landsleikjahlé

„Já ég tel að við séum með ákveðið forskot. Oftast hefur þetta verið öfugt, við erum oftast það lið sem er nýkomið úr leik. Þetta á að gefa okkur ákveðið forskot," segir Iraola sem gerði frábæra hluti með Bournemouth áður en hann tók við Liverpool.

„Ég held að allir viti hversu erfitt það er að vinna Bournemouth en ég býst við að ég hafi líka það forskot að ég þekki þá út og inn. Þeir hafa reyndar það að þeir þekkja mig mjög vel."

„Ég hlakka virkilega til að hitta fólk þarna og knúsa það; starfsfólk sem ég hef unnið með og leikmenn sem mér þykir vænt um. Ég hélt með þeim í gær þegar þeir voru að spila sinn fyrsta Evrópuleik. Ég óska ??þeim alls hins besta. En það sem er mikilvægast núna er að fara þangað og vinna, vera eins miskunnarlausir og mögulegt er. Allt annað má bíða þar til eftir leik."
Iraola þegar hann var með Bournemouth.

Iraola þegar hann var með Bournemouth.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal4+712
2Man City4+612
3Leeds4+48
4Hull City4+38
5Brighton4+87
6Chelsea4+17
7Brentford4+36
8Liverpool4+26
9Everton4+26
10Ipswich Town4-36
11Nott. Forest405
12Newcastle4-15
13Man Utd404
14Sunderland4-24
15Bournemouth4-13
16Crystal Palace4-53
17Tottenham4-52
18Fulham4-31
19Aston Villa4-61
20Coventry4-100
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.