Fotbolti.net
18.09.26 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Frávik hjá KR á þessu tímabili

KR er það lið sem heldur boltanum mest í Bestu deildinni.

KR er það lið sem heldur boltanum mest í Bestu deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er eitt atriði úr síðasta leik KR sem er sérstaklega áhugavert þegar horft er fram á leikinn gegn Víkingi sem fer fram á morgun.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 17. september á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Þú getur skráð þig með því að smella hérna.
Í 5-1 sigrinum á ÍA var KR í fyrsta sinn á tímabilinu minna með boltann en andstæðingurinn, 46,68 prósent gegn 53,32. Það er talsverð breyting fyrir lið sem hefur alla leiktíðina viljað stjórna leikjum sínum með boltann.

Það minnsta sem liðið hafði verið með boltann í leik í Bestu deildinni í sumar fyrir leikinn gegn ÍA var 49,05% gegn Fram.

Í öllum öðrum leikjum sumarsins - fyrir utan þessa tvo - hefur KR verið meira með boltann. KR er það lið sem heldur boltanum mest í Bestu deildinni.

En niðurstaðan var ekki slæm. Þvert á móti. KR skoraði fimm mörk og vann öruggan sigur.

Það er því freistandi að spyrja hvort eitthvað hafi verið að breytast í nálgun KR, eða hvort leikurinn gegn ÍA hafi einfaldlega verið tilviljunarkennt frávik frá því sem liðið hefur gert í sumar.

Var KR mögulega að prófa sig áfram með aðra nálgun fyrir leikinn gegn Víkingi? Þetta var í fyrsta sinn í sumar þar sem andstæðingur KR var talsvert meira með boltann.

Stjórnin gegn frjálsræðinu
TENGT EFNI

Stjórnin gegn frjálsræðinu

Úr síðasta leik KR og Víkings.

Úr síðasta leik KR og Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.