Gríðarlega mikið undir í bæjarslagnum - „Saman munum við halda okkur í efstu deild"
Pressa á báðum liðum en Þórsarar yrðu sáttari með stigið

Hvet hvern einasta stuðningsmann til að láta vel í sér heyra og saman myndum við bilaða stemningu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það getur verið erfitt að vinna sig úr svona stöðu en mér finnst hópurinn hafa tæklað þetta vel hingað til.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markús Máni Pétursson: Hann hefur staðið sig mjög vel eftir að hafa fengið svona stórt hlutverk í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann er mjög góður þjálfari og við verðum að nýta tímann á meðan hann er hérna og taka inn allt sem hann segir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við nýttum ekki yfirhöndina sem við höfðum í fyrri hálfleik í þeim leik og svo datt ákefðin niður í seinni hálfleik hjá okkur

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hvet hvern einasta stuðningsmann til að láta vel í sér heyra og saman myndum við bilaða stemningu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net ræddi við Hans Viktor Guðmundsson sem er fyrirliði KA.
Hvað vantaði upp á í síðasta leik gegn Þór?
„Við nýttum ekki yfirhöndina sem við höfðum í fyrri hálfleik í þeim leik og svo datt ákefðin niður í seinni hálfleik hjá okkur."
Hvernig leik má búast við?
„Þetta verður mikil barátta og við þurfum að vera yfir í henni og á sama tíma yfirvegaðir og ekki láta draga okkur út í einhverja vitleysu. Ég held að það sé bara sem þarf að varast, að mæta með rétt spennustig inn í leikinn."
Hvernig metur þú það fyrir fram, er meiri pressa á öðru hvoru liðinu fyrir leikinn?
„Bæði lið í bullandi fallbaráttu og því mikil pressa á báðum liðum, en við erum stigi á eftir Þór svo við viljum klárlega ná í öll þrjú stigin til þess að koma því í okkar hendur að halda okkur uppi og ekki þurfa að treysta á að önnur lið tapi stigum. Þórsarar væru mun sáttari en við með jafntefli."
Tímabilið til þessa hefur verið vonbrigði, hvernig finnst þér liðið hafa höndlað það síðustu vikur að bakið er upp við vegg og það þarf virkilega að hafa fyrir því að komast úr þessari stöðu?
„Já, það getur verið erfitt að vinna sig úr svona stöðu en mér finnst hópurinn hafa tæklað þetta vel hingað til. Eigum góðar æfingavikur og erum stanslaust að reyna að bæta okkur."
Hvað finnst þér hafa breyst eftir komu Eiðs Smára og hvernig er að hafa hann sem þjálfara?
„Að fá Eið inn í þjálfareymið gaf hópnum helling, menn fóru upp á tærnar og það hefur verið meira tempó á æfingum. Hann er mjög góður þjálfari og við verðum að nýta tímann á meðan hann er hérna og taka inn allt sem hann segir."
Er eitthvað auka pepp að spila á nýja vellinum, gaman að sjá uppbygginguna á svæðinu?
„Já, mér finnst skemmtilegra að spila á nýja vellinum og sérstaklega á móti Þór þar sem stúkan er full og það myndast mikil stemning."
„Það verður mjög gaman að færa sig í nýja og betri aðstöðu, og þetta mun gera mikið fyrir okkur."
Markús Máni Pétursson á sínu fyrsta fulla tímabili í efstu deild, hvernig er að spila með honum í miðverðinum?
„Það er gott að spila með honum, hann hefur staðið sig mjög vel eftir að hafa fengið svona stórt hlutverk í sumar. Hann er mjög sterkur og fljótur, einnig mjög agressífur."
Ertu með einhver skilaboð til stuðningsmanna KA fyrir laugardaginn?
„Stuðningsmennirnir okkar hafa verið frábærir í allt sumar. Í baráttunni sem er framundan þá verður ennþá mikilvægara að fá stuðning frá þeim og saman munum við halda okkur í efstu deild. Við byrjum á morgun í leiknum á móti Þór þar sem ég hvet hvern einasta stuðningsmann til að láta vel í sér heyra og saman myndum við bilaða stemningu," segir Hans Viktor.

Það getur verið erfitt að vinna sig úr svona stöðu en mér finnst hópurinn hafa tæklað þetta vel hingað til.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markús Máni Pétursson: Hann hefur staðið sig mjög vel eftir að hafa fengið svona stórt hlutverk í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann er mjög góður þjálfari og við verðum að nýta tímann á meðan hann er hérna og taka inn allt sem hann segir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við nýttum ekki yfirhöndina sem við höfðum í fyrri hálfleik í þeim leik og svo datt ákefðin niður í seinni hálfleik hjá okkur

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Stjarnan | 23 | -6 | 31 |
| 2 | Valur | 23 | -3 | 30 |
| 3 | FH | 23 | -9 | 24 |
| 4 | Þór | 23 | -31 | 21 |
| 5 | KA | 23 | -16 | 20 |
| 6 | ÍBV | 23 | -15 | 18 |
