Fotbolti.net
19.01.21 - 22:06
Aksentije Milisic

England: Leicester á toppinn eftir sannfærandi sigur á Chelsea

Maddison skorar í kvöld.

Maddison skorar í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Leicester City 2 - 0 Chelsea</b>
1-0 Wilfred Ndidi ('6 )
2-0 James Maddison ('41 )
Síðari leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni var viðureign Leicester City og Chelsea.

Heimamenn komust í forystu strax á 6. mínútu en þá skoraði miðjumaðurinn öflugi Wilfred Ndidi. Leicester tók stutta hornspyrnu sem endaði með því að boltinn barst á Harvey Barnes sem hitti boltann ömurlega. Það endaði hins vegar sem stoðsending því Ndidi skaut boltanum með vinstri fæti fyrir utan teig, stönginn inn.

Chelsea hélt að það væri að fá víti þegar brotið var á Christian Pulisic. VAR skoðað atvikið hins vegar og á endanum var dæmd aukaspyrna sem Mason Mount skaut langt yfir markið.

Leicester spilaði mjög vel í kvöld og var betra liðið. Á 41. mínútu skoraði James Maddison laglegt mark. Hann fékk sendingu frá Marc Albrighton og tók hann færið mjög vel. Staðan því 2-0 í hálfleik.

Chelsea gekk illa að skapa sér færi og lenti vörnin hjá heimamönnum nánast í engum vandræðum í kvöld. Leicester fékk nokkur tækfæri til að bæta við marki en inn vildi boltinn ekki.

Timo Werner tókst að koma knettinum í netið undir lok leiks en var dæmdur rangstaður. Tæpt var það en líklega rétt.

Niðurstaðan því sanngjarn 2-0 sigur Leicester sem fer á toppinn. Chelsea er í áttunda sæti deildarinnar, níu stigum á eftir Leicester.

Chilwell mætti sínum gömlu félögum.

Chilwell mætti sínum gömlu félögum.

Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.