Fotbolti.net
19.05.19 - 16:16
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Messi skoraði tvö í jafntefli

Oviedo nálgast umspil

Spánn: Messi skoraði tvö í jafntefli
Canon

Mynd: Getty Images

Eibar 2 - 2 Barcelona
1-0 Marc Cucurella ('20)
1-1 Lionel Messi ('31)
1-2 Lionel Messi ('32)
2-2 Pablo De Blasis ('45)
Börsungar voru heppnir að sleppa með jafntefli gegn Eibar í lokaumferð spænska deildartímabilsins.

Marc Cucurella kom heimamönnum yfir en Lionel Messi sneri stöðunni við með tveimur mörkum á tveimur mínútum.

Pablo De Blasis jafnaði með stórkostlegu marki fyrir leikhlé þar sem hann nýtti sér skógarhlaup Jasper Cillessen og smellti knettinum fallega í netið úr erfiðu færi.

Heimamenn áttu skilið að gera sigurmark í síðari hálfleik en inn fór boltinn ekki og 2-2 lokatölur. Messi lýkur tímabilinu með 36 deildarmörk og 13 stoðsendingar. Hann mun því hirða Gullskóinn í sjötta sinn nema Kylian Mbappe takist að skora sjö mörk í lokaumferðinni í Frakklandi.

Barcelona lýkur keppni sem deildarmeistari á meðan Eibar endar í 12. sæti, með 47 stig.

Real Oviedo 1 - 0 Numancia
1-0 Carlos Hernandez ('47)

Diego Jóhannesson Pando lék þá allan leikinn í 1-0 sigri Real Oviedo gegn Numancia í B-deildinni.

Carlos Hernandez gerði eina mark leiksins í upphafi síðari hálfleiks og er Oviedo aðeins tveimur stigum frá umspilssæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Barcelona7+2421
2Atletico Madrid7+916
3Betis7+216
4Real Madrid7+1015
5Sevilla7+113
6Alaves7+511
7Deportivo7+210
8Real Sociedad7-410
9Villarreal7+18
10Athletic6+18
11Getafe7-38
12Vallecano7-58
13Osasuna7-78
14Celta7+27
15Espanyol707
16Racing Santander7-107
17Levante6-45
18Elche7-65
19Valencia7-94
20Malaga7-93
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.