19.06.25 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Reynslumiklir dómarar ekki sjáanlegir í Bestu - „Þeir eru ekki hættir, vona ég"

Erlendur Eiríksson fylgist hér með leik Breiðabliks og Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Erlendur Eiríksson og Pétur Guðmundsson hafa ekki dæmt í Bestu deildinni til þessa. Þeir eru báðir gríðarlega reynslumiklir. Erlendur er talsvert reynslumeiri, enda verið landsdómari í um 30 ár.
Pétur á styttri feril af baki en hefur oft á síðasta áratug verið valinn besti dómari landsin af leikmönnum deildarinnar. Erlendur hefur þrisvar á síðustu fimmtán árum verið valinn besti dómarinn hér á Fótbolti.net.
Pétur dæmdi leik í 3. deildinni um liðna helgi og Erlendur dæmdi í sömu deild í maí. Þeir eru því allavega ekki alveg hættir að dæma.
Þóroddur Hjaltalín, sem starfar við dómaramál hjá KSÍ, var spurður út í þá Pétur og Erlend.
Eru þeir hættir?

„Pétur varð í aðgerð í vetur og Elli meiddist í vor. Þeir eru ekki hættir, vona ég."
„Eftir því sem ég best veit stefna þeir báðir á að koma aftur á völlinn," segir Doddi.

Innkastið - Fyrsti hausinn fokinn

Pétur dæmdi bikarúrslitaleik KA og Víkings í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð