Fotbolti.net
19.07.18 - 07:23
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Þrándheimi

Búlgarski dómarinn á forsíðunni

Apostolov og hans teymi.

Apostolov og hans teymi.

Canon

Mynd: Richard Sagen/Adresseavisen

„Ég hef ekki áður séð leik þar sem dómarinn hefur eins afgerandi áhrif," segir Thorstein Helstad, fyrrum leikmaður Rosenborg, í íþróttablaði Verdens Gang í morgun.

Stefan Apostolov, dómarinn sem dæmdi leik Rosenborg og Vals í gær, fær forsíðuna á blaðinu með fyrirsögninni „Gjörningur Apostolov".

Mikið hefur verið rætt og ritað um frammistöðu Apostolov sem dæmdi leikinn skelfilega illa.

Smelltu hér til að lesa nánar um leikinn

Apostolov dæmdi víti í þrígang en í öll skiptin var um ranga ákvörðun að dæma, þar á meðal þegar hann dæmdi víti sem Bendtner skoraði í úr uppbótartíma og tryggði Noregsmeisturunum áfram.

Sjá einnig:
Helsti sparkspekingur Noregs: Eins og dómarinn hafi fengið peninga
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.