Erfitt að kveðja Breiðablik - „Hafði séð fyrir mér að fá að velja endinn sjálfur“

Yfirgefur Breiðablik að tímabilinu loknu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Unnið þrjá Íslandsmeistaratitla með félaginu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spilað 358 leiki fyrir Breiðablik og skorað 86 mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í baráttunni við Milos Glogovac árið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Halldór Árnason tekur við Val eftir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Ég er að klára þetta með Blikunum og sé hvað gerist.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Yfirgefur Breiðablik að tímabilinu loknu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn, sem er 36 ára gamall, rennur út af samningi eftir tímabil og fékk ekki framlengingu. Hann hefur unnið þrjá Íslandsmeistaratitla með félaginu og unnið bikarmeistaratitilinn í tvígang.
Fótbolti.net ræddi við Kristinn fyrr í dag og spurði hann út í stöðu mála.

Kiddi Steindórs kveður Breiðablik - „Hef gefið allt mitt fyrir félagið og sé ekki eftir neinu“
Hvernig er að spila sína síðustu leiki fyrir uppeldisfélagið?
„Það er skrýtið. Ég held að það hafi ekki einhvern veginn alveg meðtekið það ennþá. Gerir það sennilega ekki fyrr en maður er farinn. Maður reynir að pæla ekki of mikið í þegar maður er að undirbúa sig fyrir leik eða inni á vellinum. En ég veit það ekki. Ég eiginlega svara því bara betur seinna.“
Hafði legið lengi fyrir að þú myndir yfirgefa Breiðablik að tímabilinu loknu?
„Nei, ég fór bara á fund þarna vikuna áður og fékk að vita þessa niðurstöðu. Svo var ég búinn að segja einhverjum og mögulega eitthvað farið að spyrjast út þannig að ég ákvað bara að tilkynna þetta. Þannig að ég gæti mögulega kvatt Blika sem eru í Smáranum eða einhvers staðar,“ segir Kristinn og játar hann að niðurstaða fundarins hafi verið svekkjandi.
„Þetta náttúrulega er bara minn klúbbur. Maður hafði séð fyrir sér að maður fengi einhvern veginn að velja endinn sjálfur. En að sama skapi kom þetta ekkert kannski á óvart miðað við kannski hlutverkið í sumar, spiltíma og annað þannig að innst inni þá bjóst ég alveg við þessu,“ segir Kristinn og heldur áfram.
„En auðvitað leiðinlegt að hérna fá þetta staðfest og að þurfa að kveðja minn uppeldisklúbb. Þannig að það eru ýmsar tilfinningar og það verður erfitt og tilhugsunin er erfið en á sama tíma reynir maður að vera bjartsýnn og jákvæður. Þegar einar dyr lokast þá opnast aðrar og allt það, þannig að við sjáum bara hvað gerist.“
Íhugaði ekki að leggja skóna á hilluna
Þegar ljóst var að þú fengir ekki áframhaldandi samning hjá Breiðabliki, hvarflaði einhvern tímann að þér að leggja skóna á hilluna?
„Nei, ekkert þannig sko. Þú veist, ég eins og ég hérna reyndi að skrifa í textanum þá reyndi að koma því frá mér að ég væri að kveðja Breiðablik en ekki kannski fótboltann. Einhverjir kannski túlkuðu þetta vitlaust að ég væri hreinlega bara hættur. En ég er ekki hættur, er bara í þeirri stöðu að ég þarf að sjá bara hvað er í boði.
Ég þarf bara sjá hvað gerist þá get ég tekið einhverja endanlega ákvörðun. Ég er einhvern veginn bara opinn fyrir öllu, er bara svolítið að bíða og reyna að klára tímabilið - þessar síðustu æfingar og reyna að njóta þess áður en maður fer að pæla of mikið í þessu,“ segir Kristinn.
Ekki rætt við neinn og farinn að athuga símasambandið
Í slúðurpakka Fótbolta.net var Kristinn orðaður við nokkur félög, þar á meðal Val. Þar sem Halldór Árnason, fyrrverandi þjálfari Kristins hjá Breiðabliki, tekur við liðinu eftir tímabil.
„Ég hef rætt við hann (Halldór) já, bara eftir að hann hætti en ekki um þetta. Ég veit ekkert hver hans staða er núna og hvað hann er mikið inni í hlutunum eins og er. Ég bara býst við að hann taki bara við formlega þegar tímabilinu lýkur og þá væntanlega fara þeir að skoða sín mál.
En nei, ég hef ekki heyrt í neinum. Þannig að ég er farinn að athuga hvort ég sé með lélegt samband eða eitthvað að símanum. En nei, nei, ég er bara að klára þetta með Blikunum og bara sé hvað gerist,“ segir Kristinn að lokum.

Unnið þrjá Íslandsmeistaratitla með félaginu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spilað 358 leiki fyrir Breiðablik og skorað 86 mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í baráttunni við Milos Glogovac árið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Halldór Árnason tekur við Val eftir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Ég er að klára þetta með Blikunum og sé hvað gerist.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
