Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 19. júlí 2019 16:44
Brynjar Ingi Erluson
Brynhildur Brá í Fylki (Staðfest)
Brynhildur í leik með Selfyssingum
Brynhildur í leik með Selfyssingum
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Kvennalið Fylkis fékk styrkingu í dag en Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir er komin til félagsins frá Selfossi.

Brynhildur er fædd árið 2000 og uppalin í Hetti en fór í Þór/KA árið 2017 áður en hún samdi við Selfoss.

Hún hefur spilað 11 leiki í Pepsi Max-deildinni, einn fyrir Þór/KA og svo 10 leiki í sumar með Selfyssingum.

Hún er nú komin í Fylki og fær leikheimild á morgun en hún getur þá ekki mætt Selfyssingum í Mjólkurbikarnum í kvöld.

Brynhildur á að baki 1 landsleik fyrir U17 ára landsliðið.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner