Fotbolti.net
19.08.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Vilja Tosin sem arftaka fyrir Konsa

Vilja Tosin sem arftaka fyrir Konsa
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa er búið að samþykkja að selja miðvörðinn Ezri Konsa til Arsenal fyrir rúmlega 50 milljónir punda og er því í leit að nýjum varnarmanni.
Aston Villa samþykkir ríflega 50 milljóna punda tilboð Arsenal
TENGT EFNI

Aston Villa samþykkir ríflega 50 milljóna punda tilboð Arsenal

Sky Sports greinir frá því að Tosin Adarabioyo sé efstur á óskalistanum, en hann hefur einnig verið orðaður við Marseille, Benfica og Sevilla á síðustu vikum.

Tosin er 28 ára gamall og með tvö ár eftir af samningi við Chelsea. Hann er í leit að meiri spiltíma eftir að hafa aðeins spilað 29 leiki í öllum keppnum á síðustu leiktíð. Chelsea er talið vilja fá um 20 til 25 milljónir punda fyrir miðvörðinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.