Fotbolti.net
19.08.26 - 14:53
Kári Snorrason

Leao boðinn til Chelsea á afsláttarverði

Skoraði níu mörk í 29 deildarleikjum í fyrra.

Skoraði níu mörk í 29 deildarleikjum í fyrra.

Canon

Mynd: EPA

AC Milan hefur boðið Chelsea að kaupa portúgalska kantmanninn Rafael Leao á 34 milljónir punda.

Ítalski miðillinn La Gazzetta dello Sport greinir frá tíðindunum en Leao, sem er 27 ára, hefur verið lykilmaður Milan undanfarin ár.
Lækka verðmiðann á Leao
TENGT EFNI

Lækka verðmiðann á Leao

Hann vill þó yfirgefa félagið og virðist vera takmarkaður áhugi á Leao. Upphaflega vildi Milan fá vel yfir 50 milljónir punda fyrir leikmanninn en engin tilboð bárust.

Milan lækkaði síðan verðmiðann í tæpar 40 milljónir punda. Áhugi var frá Tyrklandi og Sádi-Arabíu á leikmanninum en hann vill spila á Englandi eða á Spáni.

Leao gæti fyllt í skarð samlanda síns Pedro Neto hjá Chelsea ef Neto skyldi yfirgefa Lundúnaliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.