Fotbolti.net
19.08.26 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Segir að Konsa komist ekki í sterkasta lið Arsenal

Konsa virðist á leið til Arsenal.

Konsa virðist á leið til Arsenal.

Canon

Mynd: EPA

Ezri Konsa virðist á leið til Arsenal frá Aston Villa en ensku meistararnir hafa verið með augastað á Konsa í sumar.

Danny Murphy, sérfræðingur talkSPORT segir að kaupin á Konsa verði góð fyrir Arsenal en hann telur að Konsa verði ekki í byrjunarliðinu þegar William Saliba snýr til baka eftir meiðsli. Murphy lék á sínum tíma níu A-landsleiki og lék m.a. með Fulham og Liverpool á sínum ferli.

Óvíst er hvenær Saliba snýr aftur á völlinn en hann glímir við bakmeiðsli.
Arsenal að nálgast kaup á Konsa
TENGT EFNI

Arsenal að nálgast kaup á Konsa

„Hann er stórkostlegur leikmaður, hefur verið frábær hjá Villa svo ég skil hvers vegna Arsenal er hrifið af honum."

„Þetta er skref upp á við hann þegar kemur að því að reyna vinna titla, en ef allir eru heilir, þá sé ég hann ekki spila frekar en Gabriel og Saliba."

„Flestir leikmenn hafa trú á sér að komast inn í liðið og ég er viss um að hann muni gera það, en raunveruleikinn er sá að þegar Saliba kemur aftur, og hans tengingu með Gabriel, þá held ég að Konsa spili færri leiki."

„Styrkleiki Arsenal er breiddin sem er mjög öflug, en Konsa verður góð viðbót, hann er virkilega góður leikmaður."


Murhpy hefur áhyggjur af Aston Villa sem verður líklega án síns besta varnarmanns í fyrstu umferð deildarinnar.

„Ef Arsenal fær hann, þá eru þeir að fá öflugan leikmann með gott sjálfstraust. Ég er hissa á því a Villa eru að leyfa þessu að gerast. Þetta öskrar á mann að ef hann fer þá verður stór hola eftir til að fylla í," segir Murphy.

Arsenal lítur á Konsa sem miðvörð sem einni geti leyst hægri bakvörðinn.
Saliba og Gabriel hafa spilað frábærlega saman.

Saliba og Gabriel hafa spilað frábærlega saman.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.