Fotbolti.net
19.08.26 - 17:58
Ívan Guðjón Baldursson

Listamaðurinn Reijnders til Al-Qadsiah (Staðfest)

Listamaðurinn Reijnders til Al-Qadsiah (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn framsækni Tijjani Reijnders er búinn að skrifa undir samning við sádi-arabíska félagið Al-Qadsiah.
Þessi hollenski landsliðsmaður skiptir um félag eftir eitt ár með Manchester City, þar sem hann kom með beinum hætti að 15 mörkum í 47 leikjum á síðustu leiktíð.

Arabarnir borga rúmlega 50 milljónir punda til að kaupa Reijnders og renna um 12 milljónir til AC Milan vegna sérstaks ákvæðis í kaupsamningnum sem var gerður við Man City í fyrra.

Reijnders er þriðji miðjumaðurinn sem yfirgefur herbúðir City í sumar eftir Rodri og Tijjani Reijnders. Fleiri gætu verið á leið burt en stórveldið er sterklega orðað við Enzo Fernández og Ayyoub Bouaddi eftir að hafa fest kaup á Elliot Anderson fyrir metfé fyrr í sumar.

Hjá Al-Qadsiah mun Reijnders leika með Nacho Fernández, Julian Weigl, Otávio, Mateo Retegui og Julian Quinones.

Reijnders lentur í Sádi-Arabíu
TENGT EFNI

Reijnders lentur í Sádi-Arabíu



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.