Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 20. maí 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland í dag - Óli Jó fer á sinn gamla heimavöll
Ólafur Jóhannesson.
Ólafur Jóhannesson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru þrír leikir í Pepsi Max-deild karla í kvöld. Fjórðu umferðinni með þessum leikjum.

Stórleikur kvöldsins er auðvitað leikur FH og Vals í Kaplakrika. Þessi félög hafa verið þau tvö öflugustu undanfarin ár. Valur er ríkjandi Íslandsmeistari og er Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, að fara á sinn gamla heimavöll.

Fyrir leikinn er FH með sjö stig og Valur með fjögur stig.

Valsmenn hafa verið mikið í fréttum undanfarna daga eftir að það kom í ljós að félagið reyndi að losa sig við sóknarmanninn Gary Martin fyrir gluggalok. Það tókst ekki og spennandi verður að sjá hvort Gary verður í hóp í dag.

Á sama tíma fær KR nýliða HK í heimsókn og Grindavík og Fylkir eigast við. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15.

mánudagur 20. maí

Pepsi Max-deild karla
19:15 KR-HK (Meistaravellir)
19:15 Grindavík-Fylkir (Mustad völlurinn)
19:15 FH-Valur (Kaplakrikavöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner