Fotbolti.net
20.05.19 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þjálfarinn Kompany á enn möguleika á landsliðssæti

Þjálfarinn Kompany á enn möguleika á landsliðssæti
Canon

Mynd: Getty Images

Vincent Kompany var í gær <a href="https://www.fotbolti.net/news/19-05-2019/kompany-radinn-sem-spilandi-thjalfari-hja-anderlecht-stadfest" target="_blank">ráðinn sem spilandi þjálfari Andelecht í Belgíu</a>.
Kompany, sem er 33 ára, yfirgefur Manchester City eftir 11 ár hjá félaginu. Á hans síðasta tímabili vann liðið ensku þrennuna (ensku úrvalsdeildina, deildabikarinn og FA-bikarinn) fyrst allra karlaliða.

Þrátt fyrir að Kompany sé að fara út í þjálfun þá er ekki búið að útiloka hann hjá belgíska landsliðinu.

„Við erum öll mjög ánægð með nýju stöðu Vincent," sagði Roberto Martinez, landsliðsþjálfari Belgíu, að því er kemur fram á Goal.com.

„Eins og hjá öllum öðrum leikmönnum belgíska landsliðsins þá mun frammistaða hans skera úr um það hvort hann komist í landsliðið."

Kompany á að baki 84 landsleiki fyrir Belgíu og hefur hann skorað fjögur landsliðsmörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.