Arna Sif Ásgrímsdóttir sneri aftur í lið Þór/KA í gær eftir dvöl hjá Glasgow City í Skotlandi fyrstu mánuði þessa árs. Arna er leikreyndasti leikmaður Þór/KA og auk þess fyrirliði liðsins.
Hún leikur í stöðu miðvarðar og var valin besti leikmaður vallarins þrátt fyrir 0-1 tap. Bojana Besic, aðstoðarþjálfari Þór/KA, var spurð út í innkomu Örnu í viðtali eftir leikinn í gær.
Hún leikur í stöðu miðvarðar og var valin besti leikmaður vallarins þrátt fyrir 0-1 tap. Bojana Besic, aðstoðarþjálfari Þór/KA, var spurð út í innkomu Örnu í viðtali eftir leikinn í gær.
„Arna Sif er bara legend í liðinu. Hún lyftir stemninguna og lyftir öllum leikmönnum mjög mikið upp þegar hún er í liðinu," sagði Bojana.
Er hún besti miðvörður deildarinnar?
„Einn af þeim klárlega."
„Hún er geggjaður leiðtogi í liðinu, talar mikið, tæknlilega mjög góð og les leikinn vel. Allir boltar sem koma í loftinu eru hennar boltar," sagði Bojana. Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að neðan.
Lestu um leikinn: Þór/KA 0 - 1 Stjarnan
Athugasemdir