KR hefur unnið sex af fyrstu sjö leikjum sínum í Bestu deildinni. Fyrstu töpuðu stigin komu gegn Fram á sunnudag en sá leikur endaði með 2-2 jafntefli.
KR var í brasi á síðasta tímabili en hélt sér uppi eftir að hafa unnið síðustu tvo leikina. Luke Rae er lykilmaður í liði KR og enski kantmaðurinn ræddi við Fótbolta.net í vikunni.
KR var í brasi á síðasta tímabili en hélt sér uppi eftir að hafa unnið síðustu tvo leikina. Luke Rae er lykilmaður í liði KR og enski kantmaðurinn ræddi við Fótbolta.net í vikunni.
„Við getum ekki kvartað, ef þú hefðir sagt fyrir mig fyrir tímabilið, horfandi á síðasta tímabil, að við myndum vinna sex af fyrstu sjö og værum á toppnum (ásamt öðru liði), þá hefði ég glaður tekið því. Eftir að hafa átt svolítið erfitt uppdráttar í fyrra er gott að sjá gengið núna, við höfum haldið plani og það er að ganga eins og er. Það er góð tilfinning," segir Luke.
Frábært að spila undir Óskari
Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við sem þjálfari KR haustið 2024 og er á sínu öðru heila tímabili með liðið.
„Sem sóknarmaður sem vill alltaf fara fram á við og sýna sig, þá er frábært að spila undir Óskari, hann gefur okkur færi á að skína. Sumir þjálfarar eru varnarsinnaðri og þá er sama frjálsræðið fram á við ekki í boði. En hjá Óskari vill að við séum frjálsir, að við spilum nánast eins og á leikvellinum; að við njótum þess og séum glaðir."
Betri stýring á álaginu
Luke var í miklu basli á síðasta tímabili vegna meiðsla, byrjaði tímabilið frábærlega en var svo mikið frá.
„Ég verð að gefa sjúkraþjálfaranum hrós fyrir muninn á mér. Á undirbúningstímabilinu í fyrra æfðum við mjög mikið og af mikilli ákefð, við vorum kannski ekki með aðila sem rýndi í allar tölur á æfingum og leikjum og setti viðmið fyrir æfingavikuna. Ég æfði allavega alltaf eins mikið og ég gat. En á þessu ári hefur Magnus (Börheim) komið inn og æfingaálaginu er stýrt betur, þetta er allt öðruvísi. Núna er fylgst vel með því að menn fari ekki yfir hámarkið sitt."
„Sem dæmi þá var ákveðið í bikarleiknum gegn Stjörnunni að ég myndi ekki byrja. Hlaupatölurnar mínar voru mjög háar í deildarleiknum gegn Stjörnunni og ég held að Magnus hafi stigið aðeins inn í þar og því var ákveðið að ég myndi byrja á bekknum. Það er ekki gáfulegt fyrir restina af tímabilinu að meiðast þegar það er hægt að reyna koma í veg fyrir það."
Vill hjálpa varnarlega
Fréttamaður var á leiknum gegn Stjörnunni í deildinni og tók eftir því að undir lok leiks hljóp Luke úr sér lungun þegar hann pressaði Garðbæinga. Segir þér enginn að hægja stundum á þér, að þú sért að hlaupa of mikið?
„Ég þrífst á því að vera með mikla orku og ef ég get hjálpað liðinu varnarlega þá geri ég það. Þegar liðið sækir þá þarf líka að vera möguleiki á sendingum inn fyrir. Ég get gert það á miklum hraða og mér finnst ég ekki þurfa að hægja á mér. Mér líður eins og þegar það er alltaf einhver að bjóða sig í gegn, þá geti varnarmennirnir ekki slakað á."
Útileikur gegn Breiðabliki næst
Hvernig líta næstu leikir út?
„Við eigum þrjá leiki fram að landsleikjahléi; Breiðablik, Val og KA. Þetta eru þrír mjög erfiðir leikir. Einbeitingin er á leiknum gegn Breiðabliki sem við vitum að verður erfiður leikur. Þeir töpuðu gegn Val og vilja alls ekki tapa þessum leik, þeir vilja ekki að bilið á milli liðanna aukist. Við vitum að það verður erfiður leikur, en aðalatriðið hjá okkur er að ná að koma með þá orku sem við höfum náð að sýna í síðustu sjö leikjum. Við höfum ekki efni á því að leyfa liðum að anda á móti okkur, verðum að halda áfram að pressa hátt og sækja á 100% keyrslu," segir Luke að lokum.
Leikur KR og Breiðabliks fer fram á Kópavogsvelli á föstudag og hefst 19:15.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 7 | 6 | 1 | 0 | 21 - 4 | +17 | 19 |
| 2. KR | 7 | 6 | 1 | 0 | 27 - 13 | +14 | 19 |
| 3. Fram | 7 | 4 | 2 | 1 | 20 - 13 | +7 | 14 |
| 4. Breiðablik | 7 | 3 | 3 | 1 | 13 - 8 | +5 | 12 |
| 5. Valur | 7 | 4 | 0 | 3 | 16 - 14 | +2 | 12 |
| 6. KA | 7 | 3 | 1 | 3 | 9 - 9 | 0 | 10 |
| 7. Keflavík | 7 | 2 | 2 | 3 | 10 - 12 | -2 | 8 |
| 8. ÍA | 7 | 2 | 2 | 3 | 9 - 14 | -5 | 8 |
| 9. Stjarnan | 7 | 2 | 1 | 4 | 14 - 17 | -3 | 7 |
| 10. Þór | 7 | 2 | 0 | 5 | 6 - 19 | -13 | 6 |
| 11. FH | 7 | 0 | 2 | 5 | 12 - 20 | -8 | 2 |
| 12. ÍBV | 7 | 0 | 1 | 6 | 6 - 20 | -14 | 1 |



