Fotbolti.net
20.06.19 - 22:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

3. deild: Vængir settu þrjú á Augnablik

Hjörleifur Þórðarson skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum í kvöld.

Hjörleifur Þórðarson skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Vængir Júpíters 3-0 Augnablik</b>
1-0 Hjörleifur Þórðarson ('4, víti)
2-0 Arnór Daði Gunnarsson ('62)
3-0 Hjörleifur Þórðarson ('69, víti)

Á Fjölnisvellinum tóku Vængir Júpíters á móti Augnablik í eina leik kvöldsins í 3. deild.
Hjörleifur Þórðarson kom Vængjum yfir strax á fjórðu mínútu með mark úr vítaspyrnu. 1-0 var staðan í leikhléi.

Á 62. mínútu bætti Arnór Daði Gunnarsson við forystu Vængja og á 69. mínútu skoraði Hjörleifur aftur úr vítaspyrnu.

Fleiri urðu mörkin ekki og 3-0 sigur Vængja staðreynd. Vængir hafa fimmtán stig í fjórða sæti deildarinnar og Augnablik hefur sex stig í tíunda sæti. Áttunda umferð deildarinnar klárast um helgina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.