Liverpool undirbýr annað tilboð í Diomande

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Liverpool er að undirbúa annað tilboð sitt í Yan Diomande, leikmann Leipzig og Fílabeinsstrandarinnar. Þetta segir Paul Joyce hjá Times, sem þykir einn sá áreiðanlegasti þegar kemur að fréttum af Liverpool.

TENGT EFNI
Leipzig hafnaði tilboði Liverpool - Annað á leiðinni
Enska félagið lagði fram rúmlega 86 milljóna punda tilboð í Diomande á dögunum en Leipzig hafnaði því umsvifalaust.
Leipzig hefur verið fast á því að vilja halda Diomande í að minnsta kosti eitt tímabil til viðbótar og vill framlengja samning hans. Nýr samningur myndi innihalda kaupákvæði.
Liverpool ætlar hins vegar ekki að gefast upp, en enskir miðlar hafa fullyrt að Diomande sé efstur á óskalista félagsins.
Paul Joyce, sem starfar hjá Times, segir Liverpool nú undirbúa nýtt og endurbætt tilboð í þennan 19 ára gamla vængmann.
Þó Leipzig vilji halda honum hefur afstaða félagsins alltaf verið sú að allir leikmenn séu falir fyrir rétt verð. Það myndi hins vegar taka að minnsta kosti 100 milljónir punda til að sannfæra félagið um að selja.
Diomande hefur farið ágætlega af stað með Fílabeinsströndinni á HM. Hann átti stóran þátt í marki liðsins í 2-1 tapi gegn Þýskalandi í kvöld og var einnig líflegur í 1-0 sigrinum á Ekvador í fyrstu umferðinni.