Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. febrúar 2021 20:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einkunnir Arsenal og Man City: Auba fjarkaður - Þrír City-menn fá átta
John Stones fékk átta í einkunn
John Stones fékk átta í einkunn
Mynd: Getty Images
Þeir Fernandinho og miðvarðaparið, John Stones og Ruben Dias, fá allir átta í einkunn fyrir frammistöðu sína í sigri Manchester City gegn Arsenal í kvöld. Átta er hæsta einkunn sem gefin var í einkunnagjöf Sky Sports eftir leik.

Leikmenn City fá á bilinu 6-8 í einkunn en leikmenn Arsenal fá 4-6 í einkunn. Það er Pierre-Emerick Aubameyang sem fær lægstu einkunnina, fjóra.

Einkunni leikmanna:

Arsenal: Leno (6), Bellerin (5), Holding (6), Mari (6), Tierney (6), Elneny (6), Xhaka (6), Saka (6), Odegaard (5), Pepe (5), Aubameyang (4)
Varamenn: Lacazette (5), Smith Rowe (5)

Man City: Ederson (6), Cancelo (6), Dias (8), Stones (8), Zinchenko (7), Silva (7), Fernandinho (8), Gundogan (6), Mahrez (7), De Bruyne (7), Sterling (7).
Varamaður: Jesus (6).

Maður leiksins: Ruben Dias

Athugasemdir
banner
banner
banner