Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 21. mars 2023 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alaba í landsliðshópnum þrátt fyrir meiðsli - Gæti pirrað Ancelotti
Mynd: EPA

David Alaba er í austurríska landsliðshópnum sem mætir Azerbaijan og Eistlandi í undankeppni EM í vikunni.


Þetta kemur mikið á óvart þar sem hann hefur ekki spilað í undanförnum leikjum hjá Real Madrid vegna meiðsla.

Real hefur ekki tjáð sig um ákvörðun Alaba en Mundo Deportivo greinir frá því að hann sé tilbúinn að fórna því að reita Carlo Ancelotti til reiði til að leiða þjóð sína út á völl en Alaba er fyrirliði landsliðsins.

En ef allt fer á besta veg gæti þetta verið gæfuspor fyrir Real Madrid. Liðið tapaði gegn Barcelona um helgina og er 12 stigum á eftir erkifjendunum í deildinni.

Liðið á þó eftir að spila síðari leikinn í bikarnum gegn Barcelona en sá fyrri fór 1-0 fyrir Barcelona. Svo er Real komið í 8 liða úrslit Meistaradeildarinnar þar sem spænska liðið mætir Chelsea.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner