Fotbolti.net
21.04.21 - 07:30
Victor Pálsson

Perez: Ronaldo kemur ekki aftur til Real

Perez: Ronaldo kemur ekki aftur til Real
Canon

Mynd: Getty Images

Cristiano Ronaldo er ekki á leið aftur til Real Madrid að sögn forseta félagsins, Florentino Perez.
Ronaldo hefur verið orðaður við endurkomu til Spánar en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Juventus.

Ronaldo yfirgaf Real árið 2018 en hann er 36 ára gamall í dag og vann allt mögulegt á Spáni.

Ronaldo hefur einnig verið duglegur að skora á Ítalíu en óvíst er hvort hann framlengi samninginn.

„Cristiano Ronaldo mun ekki koma aftur til Real Madrid," sagði Perez við El Chiringuito.

„Það er ekkert vit í því. Hann er samningsbundinn Juventus. Ég elska hann mikið og hann hefur gefið okkur svo mikið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.