Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
   mán 21. júní 2021 21:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnar Gunnlaugs: KR átti skilið að jafna leikinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög ánægður með stigið," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, eftir 1-1 jafntefli gegn KR í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

KR jafnaði í uppbótartíma eftir að Víkingur hafði leitt frá tíundu mínútu. Samt sem áður var Arnar sáttur með úrslitin að eigjn sögn.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  1 KR

„Seinni hálfleikur var mjög erfiður. Þeir lágu vel á okkur KR-ingar og spiluðu mjög vel, án þess þó að skapa sér einhver færi. Ég er mest svekktur að hafa ekki klárað leikinn í fyrri hálfleik. Ég upplifi það þannig að við fengum færi til að skora fleiri mörk í fyrri hálfleik."

„Mér fannst þetta verðskuldað jafntefli, KR átti skilið að jafna leikinn fannst mér."

Víkingur er áfram eina taplausa lið deildarinnar en þeir eru þremur stigum frá toppnum eftir þessi úrslit í kvöld.

„Hver leikur er bara stríð og hrikalega gaman, við verðum að njóta þess. Við þurfum að sýna betri leik og vera líkari sjálfum okkur til að standast þessum liðum sporðinn. Við megum ekki falla svona mikið í skotgrafirnar og vera hræddir við að spila okkar leik. Mér fannst það áberandi í seinni hálfleik."
Athugasemdir
banner