Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 21. október 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Fyrsti íslenski dómarakvartettinn skipaður konum dæmir í Wales
Kvenaboltinn
Mynd: KSÍ
Á morgun mætast Wales og Færeyjar í undankeppni EM kvenna 2022. Leikurinn fer fram í Cardiff í Wales og hefst kl. 18:05 að íslenskum tíma.

Dómari leiksins verður Bríet Bragadóttir, aðstoðardómarar verða þær Rúna Kristín Stefánsdóttir og Eydís Einarsdóttir, og varadómari verður Bergrós Unudóttir.

Þetta er í fyrsta sinn sem fjórar íslenskar konur skipa dómarakvartett í alþjóðlegum leik A landsliða á erlendri grundu.

Bríet hefur starfað við alþjóðleg verkefni síðan 2014, Rúna síðan 2012 og Eydís síðan 2017, en þetta er fyrsta alþjóðlega verkefni Bergrósar.
Athugasemdir
banner
banner