Fotbolti.net
21.11.20 - 16:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þýskaland: Bayern missteig sig - Alfreð spilaði í jafntefli

Coman jafnaði metin fyrir Bayern.

Coman jafnaði metin fyrir Bayern.

Canon

Mynd: Getty Images

Evrópumeistarar Bayern München misstigu sig þegar liðið tók á móti Werder Bremen í þýsku úrvalsdeildinni.
Kingsley Coman jafnaði metin fyrir Bayern eftir rúmlega klukkutíma leik, eftir að Maximilian Eggestein hafði komið Werder yfir undir lok fyrri hálfleiks.

Ekki voru fleiri mörk skoruð og lokatölur því 1-1 í München. Bayern er á toppi deildarinnar með 19 stig, og Werder er í áttunda sæti með 11 stig. Í öðru sæti er Bayer Leverkusen sem vann útisigur gegn Arminia Bielefeld.

Alfreð Finnbogason spilaði rúman klukkutíma fyrir Augsburg sem tókst að gefa jafntefli við Borussia Mönchengladbach þrátt fyrir að hafa verið einum færri frá 66. mínútu. Augsburg jafnaði metin á 88. mínútu og er í níunda sæti með 11 stig.

Hér að neðan má sjá úrslitin í leikjunum sem eru búnir í þýsku úrvalsdeildinni.

Bayern 1 - 1 Werder
0-1 Maximilian Eggestein ('45 )
1-1 Kingsley Coman ('62 )

Borussia M. 1 - 1 Augsburg
1-0 Florian Neuhaus ('5 )
1-1 Daniel Caligiuri ('88 )
Rautt spjald: Rafael Framberger, Augsburg ('66)

Hoffenheim 3 - 3 Stuttgart
1-0 Christoph Baumgartner ('16 )
1-1 Nicolas Gonzalez ('18 )
1-2 Silas Wamangituka ('27 )
2-2 Ryan Sessegnon ('47 )
3-2 Andrej Kramaric ('71 , víti)
3-3 Marc-Oliver Kempf ('90 )

Schalke 04 0 - 2 Wolfsburg
0-1 Wout Weghorst ('3 )
0-2 Xaver Schlager ('24 )

Arminia Bielefeld 1 - 2 Bayer
0-1 Leon Bailey ('27 )
1-1 Lucas Hradecky ('47 , sjálfsmark)
1-2 Aleksandar Dragovic ('88 )
Alfreð spilaði rúman klukkutíma fyrir Augsburg.

Alfreð spilaði rúman klukkutíma fyrir Augsburg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.