Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 22. janúar 2021 12:43
Elvar Geir Magnússon
Guðlaugur Victor mættur aftur til æfinga
Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson.
Mynd: Getty Images
Markus Anfang, stjóri Darmstadt, segir óvíst hvenær Guðlaugur Victor Pálsson snúi aftur á keppnisvöllinn.

Guðlaugur Victor er mættur aftur til æfinga hjá þýska félaginu eftir tveggja mánaða fjarveru. Hann var hér á Íslandi af persónulegum ástæðum.

Þessi 29 ára leikmaður hefur spilað fimm leiki með Darmstadt í þýsku B-deildinni á tímabilinu og skorað fimm mörk.

Liðið er í fjórtánda sæti af átján liðum deildarinnar.

Guðlaugur Victor er orðinn lykilmaður í íslenska landsliðinu og verður væntanlega í eldlínunni með liðinu þegar undankeppni HM fer af stað í mars.


Athugasemdir
banner
banner