Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 22. maí 2019 19:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sarri segist vera ánægður hjá Chelsea
Maurizio Sarri.
Maurizio Sarri.
Mynd: Getty Images
Framtíð ítalska knattspyrnustjórans Maurizio Sarri hjá Chelsea hefur mikið verið í umræðunni, Sarri stýrði Chelsea í 3. sætið í ensku úrvalsdeildinni og í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á sínu fyrsta tímabili á Englandi.

Sarri hefur verið orðaður við endurkomu í ítalska boltann og nú síðast var hann orðaður við stjórastarfið hjá Ítalíumeisturum Juventus.

„Í augnablikinu er ég bara með leikinn á miðvikudaginn í huganum, það er það sem skiptir öllu máli núna. Ég á tvö ár eftir af samningi mínum hér og ég hef ekkert átt í samskiptum við önnur félög," sagði Sarri sem er að undirbúa Chelsea fyrir úrslitaleikinn í Evrópudeildinni þann 29. maí.

„Eftir úrslitaleikinn mun ég ræða við stjórn félagsins og fá þeirra álit á störfum mínum á tímabilinu en eins og ég segi þá á ég enn tvö ár eftir af samningi mínum hér. Mér finnst enska úrvalsdeildin vera frábær deild, þetta er besta deild í heimi, mér finnst frábært að vera hér."

„Chelsea er eitt af stærstu liðunum í úrvalsdeildinni og ég er mjög, mjög ánægður hér. Ég mun ræða við stjórn félagsins um stöðuna eftir úrslitaleikinn eins og oft er gert í lok tímabils," sagði Sarri.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner