Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 22. maí 2022 21:40
Brynjar Ingi Erluson
Kvaddi með því að gefa stuðningsmanni fingurinn
Ralf Rangnick, stjóri Manchester United, staðfesti fyrir leik liðsins gegn Crystal Palace að Edinson Cavani myndi yfirgefa félagið eftir tímabilið.

Cavani kom til United á frjálsri sölu fyrir síðasta tímabil og skoraði 17 mörk í 39 leikjum en hefur verið mikið fjarverandi á þessari leiktíð.

Hann missti af 23 leikjum í ensku úrvalsdeildinni vegna meiðsla og annarra ástæðna en kom við sögu í síðustu þremur leikjum deildarinnar.

Cavani byrjaði í síðasta leik sínum fyrir United í dag í 1-0 tapi gegn Crystal Palace. Stuðningsmenn hreyttu í hann alls konar ófögrum orðum er leikmenn voru á leið í liðsrútuna en Cavani kvaddi einfaldlega með því að gefa einum stuðningsmanninum puttann.

Hann gekk síðan inn í rútuna og hefur því kvatt félagið fyrir fullt og allt. Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir