Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
banner
   fös 22. nóvember 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía um helgina - Tvö lið í veseni mætast
Það verður stórleikur í ítölsku úrvalsdeildinni þegar tvö lið sem hafa verið í vandræðum að undanförnu mætast.

AC Milan og Napoli munu eigast við á San Siro. Napoli hefur ekki unnið í síðustu fimm leikjum sínum í öllum keppnum og virðist mikil ólga ríkja hjá félaginu. AC Milan hefur verið í vandræðum á þessu tímabili, eins og síðustu tímabil, og er í 14. sæti. Þetta ætti því að vera áhugaverður leikur.

Leikur Milan og Napoli verður sýndur í beinni á Stöð 2 Sport, en hinir leikir laugardagsins verða sýnir á Stöð 2 Sport 2. Hinir leikir laugardagsins eru ekki síður athyglisverðir.

Atalanta, sem hefur skorað flest mörk í deildinni, tekur á móti Ítalíumeisturum Juventus, og liðið í öðru sæti, Inter, fer í heimsókn til Torino.

Á sunnudaginn eru sex leikir og verða tveir þeirra sýnir í beinni. Roma mætir Mario Balotelli, Sandro Tonali og félögum í Brescia, og Sampdoria og Udinese eigast við.

Á mánudaginn, í lokaleik helgarinnar, mætast Spal og Genoa í fallbaráttuslag.

laugardagur 23. nóvember
14:00 Atalanta - Juventus (Stöð 2 Sport 2)
17:00 Milan - Napoli (Stöð 2 Sport)
19:45 Torino - Inter (Stöð 2 Sport 2)

sunnudagur 24. nóvember
11:30 Bologna - Parma
14:00 Roma - Brescia (Stöð 2 Sport)
14:00 Sassuolo - Lazio
14:00 Verona - Fiorentina
17:00 Sampdoria - Udinese (Stöð 2 Sport)
19:45 Lecce - Cagliari

mánudagur 25. nóvember
19:45 Spal - Genoa
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 23 18 1 4 52 19 +33 55
2 Milan 22 13 8 1 35 17 +18 47
3 Napoli 23 14 4 5 33 21 +12 46
4 Juventus 23 13 6 4 39 18 +21 45
5 Roma 23 14 1 8 27 14 +13 43
6 Como 23 11 8 4 37 16 +21 41
7 Atalanta 23 9 9 5 30 20 +10 36
8 Lazio 23 8 8 7 24 21 +3 32
9 Udinese 23 9 5 9 26 34 -8 32
10 Bologna 22 8 6 8 32 27 +5 30
11 Sassuolo 23 8 5 10 27 29 -2 29
12 Cagliari 23 7 7 9 28 31 -3 28
13 Torino 23 7 5 11 22 40 -18 26
14 Genoa 23 5 8 10 27 34 -7 23
15 Cremonese 23 5 8 10 20 31 -11 23
16 Parma 23 5 8 10 15 30 -15 23
17 Lecce 23 4 6 13 13 30 -17 18
18 Fiorentina 23 3 8 12 25 36 -11 17
19 Pisa 23 1 11 11 19 40 -21 14
20 Verona 23 2 8 13 18 41 -23 14
Athugasemdir
banner
banner