Fotbolti.net
23.01.20 - 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Subway

England í dag - Wolves mætir Liverpool og frestaður bikarleikur

Adama Traore og Fabinho í baráttunni.

Adama Traore og Fabinho í baráttunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Tveir leikir eru á dagskrá í enska boltanum í kvöld. Á Molineux fer fram lokaleikur 24. umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar topplið Liverpool heimsækir Wolves.

Liverpool er taplaust í deildinni í rúmt ár á meðan Wolves situr í 6. sætinu og getur með sigri blandað sér í alvöru Meistaradeildarbaráttu.
Þá er einnig leikið á heimavelli Tranmere, Prenton Park, þegar Watford heimsækir heimamenn í Tranmere. Þessi leikur átti að fara fram fyrir níu dögum en aðstæður á vellinum þóttu ekki boðlegar þann daginn.

Um er að ræða seinni leik liðanna í 3. umferð ensku bikarkeppninnar þar sem fyrri leikur liðanna endaði með jafntefli.

ENGLAND: Premier League
20:00 Wolves - Liverpool (Síminn Sport)

ENGLAND: FA Cup
19:45 Tranmere Rovers - Watford

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.