Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 23. mars 2020 08:36
Elvar Geir Magnússon
Velur bara tvo frá Liverpool í úrvalslið tímabilsins
Sadio Mane komst í liðið!
Sadio Mane komst í liðið!
Mynd: Getty Images
Sparkspekingurinn Garth Crooks velur úrvalslið hverrar umferðar í ensku úrvalsdeildinni fyrir BBC og var hann beðinn um að velja úrvalslið tímabilsins hingað til, nú þegar deildinni hefur verið frestað.

Val Crooks hefur vakið mikið umtal, sérstaklega í ljósi þess að aðeins er pláss fyrir tvo leikmenn úr Liverpool í liðinu. Það þrátt fyrir að Liverpool sé með 25 stiga forystu á toppi deildarinnar.

Manchester United á einnig tvo fulltrúa í liðinu.

Meðal stórra nafna sem komast ekki í liðið eru Mohamed Salah og Trent Alexander-Arnold hjá Liverpool og Sergio Aguero, sóknarmaður Manchester City.

Garth Crooks velur lið tímabilsins (3-4-3)
Ederson (Man City - valinn 5 sinnum)
Virgil van Dijk (Liverpool - 7)
Harry Maguire (Man Utd - 6)
Gary Cahill (Crystal Palace - 4)
Fernandinho (Man City - 4)
Jack Grealish (Aston Villa - 5)
Kevin De Bruyne (Man City - 11)
Bruno Fernandes (Man Utd - 4)
Pierre-Emerick Aubameyang (Arsenal - 5)
Jamie Vardy (Leicester City - 5)
Sadio Mane (Liverpool - 7)
Athugasemdir
banner
banner